Johnny Cash

43a3068b-002aa-02e58-400cb8e1An American said:
   
*'We have George Bush, Stevie Wonder,
 
   Bob Hope, and Johnny Cash.'*
 
 
 
*And an Icelander replied:
 
*'We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope,
 
   and no Cash'.

Komdu fagnandi Ágúst

lh-hatedAdolf Hitler, O.J. Simpson, Charles Manson, Ayatollah Khomeini, George Bush, Saddam Hussein, Pol Pot, Imelda Marcos og nú Davíð Oddson.
Allt eru þetta fólk sem ég met ekki að verðleikum.

Þar af leiðandi býð ég þig hjartanlega velkominn Ágúst í minn hóp; hóp fólks sem dæmir ekki fólk af skoðunum sínum heldur verkum þess og framkvæmdum. Því það er eitt að hugsa illan gjörning en annað að framkvæma.




 


mbl.is Ágúst Ólafur: Vill að seðlabankastjórar víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljós depill í dimmviðri daganna

Var staddur erlendis sl viku og er því búinn að vera að vinna mig niður úr blaðabunkanum. Fann hér eina alveg afbragðs fyrirsögn úr 24 stundum sem birt var þann 4 sl. Svona fyrirsagnir eru svo sannarlega bjartur depill í tilveruna. Svo má nú alltaf deila um þroska undirritaðs við að gleðjast yfir svona en hey . . . why not

 

korstjori

 


Þar sem Davíð kaupir ölið

 

dabbi kóngur að gera allt vitlaust/rangt að vana

 Er Davíð Oddson Seðlabankastjóri virkilega okkar besti kostur til að leiða þessar viðræður?

 

  •  Maðurinn sem gaf eftir bankageirann án neinna viðskipta- né siðareglna.
  • Maðurinn sem er ábyrgur fyrir peningastefnu landsins.
  • Helsti andstæðingur Evru sem er nú að hamstra evrur um allar heim eins og fíkill í apóteki.
Á ekkert að ræða um ábyrgðir og gjörðir manna - er þessi maður virkilega ekki búinn að gera okkur nóg?

 

 


mbl.is Seðlabankastjóri: Viðræður standa yfir við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar í Íslenskri lofthelgi

communism

 Það er aldeilis. Kaninn farinn og kommarnir komnir í staðinn. Það er deginum ljósara að nýr og betri vinur er fæddur í austri í stað kapítalistanna sem skandelesarað hafa suðurnesjamenn sl 50 ár. 

Ég man eftir að hafa lesið það ekki alls fyrir skömmuum af áhyggjum manna af ferðum MIG þota Rússa sem hefðu aukist til muna eftir brottför kananna. Og nú vilja þessir ljúflingar fá lendingarleyfi með fullt skottið af Rúblum. Spurning hvort Björn eigi að kalla saman heimavarnarliðið?

 Einnig verðu nú að segja kómískt að sjá Íslenska íhaldið og bestu vini Hvíta Hússins nú opna faðminn fyrir helsta "óvin" mannkyns sl aldar. 

Skrítið hvernig lífið er. 

 

 


mbl.is Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðalánasjóður tekur við skuldunum mínum

Í allri þeirri óvissu sem ríkt hefur sl daga þá er allavega gott að vita til þess að enhver hefur boðið sig fram til að taka við skuldunum mínum. Mikið líður mér betur með það. Þetta var virkilega byrjað að valda mér áhyggjum um hver fengi næsta launseðil frá mér. Þetta þýðir í raun að ég missi fasta vextina mína upp á 4.15% (sem hefðu gilt fram á næsta ár) og ég fæ að borga rúma 5% vexti beint til dýralæknisns (Árna Matt) í staðinn. Þvílíkur helvítis munaður.

En af hverju leggur Blíðfinnu (Haarde) og dýralæknirinn svona mikla áherslu á að fá að taka yfir húsnæðislánin mín - jú svo hægt sé að rýmmka um fé fyrir bankanna? Menn hafa semsagt ekki gefist upp á núverandi peningastefnu og ætla að halda áfram að fita menn eins og Sigurð Einarsson með því að að ábyrgjast 500 milljarða króna lán í spilaborgina hans . . . . og með veði í norræna bankastofnun . . eru menn endanlega gengnir af göflunum? Hafa menn ekki verið að fylgjast með hruni bankastofnanna á mörkuðum sl daga? voru bréf í Decode ekki á lausu í Kaupþingi sem veð eða??


mbl.is Staða Kaupþings býsna góð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorgerði í landsliðið

Að sjálfsögðu á háttvirtur menntamálaráðherra (og starfandi forsætisráðherra) ekki að láta þetta neikvæða hjal um hækkandi skuldir heimilanna, vaxandi atvinnuleysi, lækkun krónunnar, verðbólgu né fjárhagsvanda fyrirtækja og fleiri "leiðindarmál" sem virðast tröllríða Íslensku samfélagi þessa stundina hafa áhrif á áhuga sinn á vinsælum íþróttum. Mestu máli skiptir að hún verði á staðnum og styðji stelpurnar okkar til góðs - hvað sem það kostar.

Sjálfur herðir maður bara sultarólina og hvetur stelpurnar til dáða;

- Fyrir framan sjónvarpið sem nýlega hækkaði gjaldskrá sína
- í hlýjunni heima sem í morgun var tilkynnt um að myndi hækka um 10%
- inni á heimilinu mínu sem ég virðist alltaf eiga minna og minna í

Áfram Ísland !

 


mbl.is Þorgerður Katrín: Ætla að öskra mig hása
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður með hreðjar í lagi

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, er maður að mínu skapi. Hann er greinilega laus við þann slæma pólitíkusa sið að gera frekar ekki neitt heldur en að taka ákvörðun sem gæti orkað tvímælis. Hann stígur hér fram með hreinum og beinum hætti og yfir allar vest-evrópskar kellingabækur sem einkennast af endalausu umburðarlyndi gagnvart brotamönnum.

Verður fróðlegt að fylgjast með tölfræði barnaníðs á næstu árum eftir að Donald er búin að sprauta þá niður.


mbl.is Vill láta vana barnaníðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læsið hurðum og lokið gluggum - kallinn er kominn í loftið

loksins loksins lét maður verða af því að taka þátt í samfélagsumræðunni.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband