Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Grín og glens að norðan
15.10.2010 | 12:46
Alltaf sama glensið í olíubransanum svona á föstudögum.
Tökum þetta sem dæmi:
Ef maður keypti 40 ltr af bensíni í hverri viku í heilt ár þá myndir þetta líta svona út:
40ltr * kr 183,40 * 52 vikur = kr. 381,472
40ltr * kr 194,90 * 52 vikur = kr. kr. 405,392
Samtals sparnaður upp á 23,920 eða 6%
. . . . flokkast það sem verðstríð?
Mér finnst skrítið að að ekki skuli hafa verið upphrópunarmerki fyrir aftan fyrirsögnina og að hún skuli ekki hafa verið skrifuð með rauðu letri.
Eldsneytisverðstríð á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hefur náttúrlega ekkert með það að maðurinn er glæpon eða hvað?
29.4.2009 | 15:12
Rosalega er þessi maður steiktur. Maðurinn er dæmdur þjófur og skilur ekkert í af hverju fólk á Suðurlandi treystir honum ekki og vill ekkert með hann gera á þingi.
Hvað ætli Árna finnist þá um þá nýjung í Bretlandi að þú getir fylgst með hvaða dæmdu menn búa í nágrenni við þig . . . . og rökin gegn persónuvernd - þetta eru jú glæpamenn . . . með eða án forsetabréfs
Árni Johnsen segir skipulega unnið gegn sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ósama Bin Ármanns hér á ferð?
4.11.2008 | 08:51
Íhugar að kæra stjórn Glitnis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samhugur í verki
30.10.2008 | 12:48
Það er naumast samhugur prestastéttarinnar að einbeita sér strax að því að bæta útrásarprestum tapið á gjaldeyris-floppinu í stað að einbeita sér að koma til móts við þá sundrung og eymd sem ríkir hér á landi. Þessir menn fá borgað frá íslenska ríkinu í íslenskum krónum (bönunum) og því ættu þeir að njóta og/eða líða fyrir slíkt alveg eins og við hin. Þetta er spaugileg viðurkenning á fáránleika þessara embætta ef menn halda að þeir séu námsmönnum eða öðrum sem þurfa að dveljast erlendis eitthvað æðri.
Svo er greinilegt að algjört yfirflæði er á peningum hjá þessum fulltrúum guðs hér á landi því ég sá nýlega að tvö ný brauð voru vígð í vikunni þar sem annar þessara sendiboða fékk titilinn "tölvu-prestur biskupsstofu". Ekkert óeðlilegt við það eða . . . .
Miðist við pund en ekki krónu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kosninga-hljómur?
30.10.2008 | 12:28
Æji en hvað þetta var nú sætt hjá honum Sigurði Kára sem barðist hér um árið fyrir því að alþingismenn þyrftu ekki að nota bindi á þingpöllum (þar var tímanum vel varið).
En ég tek þessum kosningarhljóm sjálfstæðismanna með með virktum því mér sýnist að flokkurinn sé að klofna frá varaformanni og niður. Lokisins komið alvöru hljóð í þennan hóp sem kennir sig við sjálfstæði einstaklinga hér á fróni.
Niðurskurður en ekki skattar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Útrásarvíkingar í skottinu?
21.10.2008 | 12:52
Hinsvegar mætti svo alveg greina um hversu mikill glæpur það hefði verið ef viðkomandi hefði verið gómaður með Jón Ásgeir, Bjöggana og Hannes Smára í skottinu - Ég myndi nú halda að hið ágæta yfirvald á Hvolfsvelli hefði nú horft í hina áttina ef svo hefði verið.
Með kjöt af heimaslátruðu í bílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta öll samstaðan??
15.10.2008 | 15:52
Verð á mjólk hækkar um 10,39% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar er Helgi Vilhjálmsson núna
13.10.2008 | 15:09
Mikið held ég væri nú upplífgandi fyrir forsvarsmenn lífeyrissjóðina að fá smá yfirhalningu frá Helga Vilhjálmssyni (Góu-kallinn) núna.
Kannski hann gæti bent mönnum á að nú er einungis ein vika síðan lífeyrissjóðirnir gáfu út yfirlýsingu þess efnis að lífeyrir myndi skerðast næstu árin sökum óráðsíu þeirra í fjárfestingum. ´
Hvað er maður búinn að heyra oft og mörgum sinnum að fjárfestingar lífeyrissjóðanna á hlutabréfamarkaði sé svo lítill að hann skipti í raun og veru engu máli í rekstri þeirra né afkomu - líti nú hver sér nær.
Ég held nú að menn þurfi aðeins að fara gera sér grein fyrir hlutverki sínu - hvort sem um er að ræða bankamenn, pólitíkusa nú eða framkvæmdarstjóra lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðir skoða Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samningatækni 101
13.10.2008 | 11:42
Voru menn virkilega að eyða lungað úr deginum til að komast að þeirri niðurstöðu að Íslenska ríkið ætlar að borga uppsetta fjárhæð? Hvað fóru margir lítrar af kaffi í þetta samkomulag?
Hagfræðingar okkar telja að eignir bankans mæti þessu að mestu og því mun líklega nást upp í megnið af þessum skyldum því innistæðurnar eru forgangskröfur. Óljóst sé hvað falli á ríkið, flest bendi til að það verði ekki háar upphæðir.
Halló - var ekki Philip Green að bjóða 10% í skuldir baugs sem hljóða upp á ca 300 milljarða í Landsbankanum. 10% eru samkvæmt mínum útreikningum 30 milljarða. Hvaða aðrar eignir á Landsbankinn, fyrir utan góða byggingarlóð við Austurstræti og ómetanlegt listaverkasafn, til að setja upp í þessa 600 milljarða? Eru menn virkilega að reikna með að geta selt skuldirnar án nokkurra affalla? Það er nú ekki eins og það standi röð manna fyrir utan hverja verslun Baugs með fullar hendur fjár, tilbúnir að borga yfirverð fyrir viðskiptavild ofl eins og baugur hefur gert sl ár.
Hvernig væri nú að okkur almenningi væri birtur listi yfir kröfur og eignir svo við getum nú sjálf reiknað þetta út - því á endanum verða þetta okkar skuldir í formi minni þjónustu og hækkandi skatta - sama hvort þessir peningar komi frá IMF eða Pútín.
Ábyrgjumst 600 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta virkilega forgangsatriði??
10.10.2008 | 14:23
Í miðjum efnagasþrengingunum þar sem pressan liggur fyrst og fremst á lækkun stýrirvaxta og stöðuleika í gjaldeyrismálum - þá er þessari ósk Seðlabankans hrinnt eins og eldingu í framkvæmd.
Fer ekki að verða tímabært að þessir snillingar fari að slíta sig frá vínarbrauðunum og fari að huga að peningmálum þessar lands sem skipta meira máli?
Heimildir korta lækkaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)